Glædileg jul!

Ég vil óska öllum þeim sem hafa nennt að lesa þessa síðu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!

Nú er ég komin til Íslands og finnst mér það alveg æðislegt. Engin heiftarleg breyting á einum né neinu. Fyndið samt hvernig mér fannst litirnir í húsinu mínu miklu sterkari en mig minnti þegar ég kom heim. Ég tel að bjartleiki íbúðarinnar á Holger Danskes vej sé ástæðan. Einnig fannst mér ísskápurinn vera fáránlega lágur! Síðan erum við búin að fá okkur tvö ný sófasett, þannig mér finnst heimilið mitt afar skemmtilegt og kósý.

Búin að hitta alla nánustu í fjölskyldunni og knúsa þau og kyssa. Fékk smá sjokk þegar ég hitti Margréti Nótt og heyrði hana tala eins og hún væri búin að eldast þvílíkt mikið. Etna krútt er alveg jafn gullfalleg og hún hefur alltaf verið en hvolpalætin í henni hafa þó aðeins minnkað. Hlakka til að sjá alla sem ég á eftir að hitta :)

Framtíð þessarar síðu er ekki enn ráðin, ég held þó að hún eigi kannski bara eftir að deyja þar sem ég var mest að nota hana til að upplýsa nánustu fjölskylduna um líf mitt í Kaupmannahöfn. En maður veit samt aldrei…

Enn og aftur gleðileg jól!

Jólakveðja,

Anna

December 26, 2008. Uncategorized. Leave a comment.

Heilbrigðisverkfræði…

…here I come :D

Mér til ómældrar gleði komst ég inn. Hlakka ótrúlega til að takast á við þetta, þó ég viti að ég eigi örugglega, næstum því, á einhverjum tímapunkti í náminu, eftir að rífa af mér höfuðið. En það er allt í lagi…

Vegna þess að ég byrja á vorönn þarf ég að taka 2 sumarnámskeið í sumar. Sökkar smá, en þá næ ég krökkunum sem byrjuðu á haustönn 2008, sem er næææs. Þ.e.a.s. ef ég held áfram í náminu. Ást mín á læknisfræði hefur ekki kulnað og mun ég fara í inntökuprófið í júní enn gáfaðri eftir námið í heilbrigðisverkfræðinni.

December 15, 2008. Uncategorized. 1 comment.

8 dagar…

8 dagar í Ísland! Þetta er ótrúlegt. Ég hlakka alls ekki til að pakka niður og reyna að komast hjá því að fá ótrúlega mikla yfirvigt.

Allt gott að frétta. Ég og Svingliðið, eða það sem eftir er af því, fórum í matinn í skólanum mínum í gær og skelltum okkur á skemmtistað með stórum hópi af krökkum úr skólanum. Ég skemmti mér alveg konunglega :) Nú eru allir Íslendingarnir að yfirgefa Danmörkina, frekar skrítið allt saman, en þó gaman að alltaf styttist í heimferðina.

Hérna er eitt youtube myndband sem ég verð að sýna ykkur. Ég hló svo ótrúlega mikið þegar ég horfði á það!

December 13, 2008. Uncategorized. Leave a comment.

Myndir og annað

Enn fleiri myndir! www.fotki.com/annareynis2

Nú er Ragnheiður komin til Kaupmannahafnar, rosalega gaman að sjá hana eftir um það bil 4 mánuði. Við skelltum okkur á ansi gott skrall síðasta laugardag og hittum norsku vinkonur mínar. Annars er voðalega lítið að frétta. Björninn er að læra undir próf og skrifa ritgerð eins og flest allir aðrir hérna úti sem eru í skóla. Að sjálfsögðu er enginn lærdómur hjá mér þó :D Ég er enn að bíða eftir svari frá HR um hvort ég komist inn, sendi póst um daginn til þeirra og þau sögðust ætla að reyna að svara fyrir 19. desember. Bíð bara spennt að fá að vita, mér finnst frekar óþægilegt að vita ekki nákvæmlega hvað ég er að fara að gera eftir áramót. Ef ég kemst hvorki inn í HR eða HÍ þá er ég  í djúpum.

Mér til mikillar gleði er danska krónan nú í 19,573 :) Vona að hún haldi áfram að lækka það sem eftir er af dvöl minni hér. Nú er bara vika og 6 dagar þar til ég kem heim! Ég er eiginlega í sjokki yfir því hversu tíminn er fljótur að líða. Það á eftir að vera svo erfitt að kveðja skólann og krakkana og meira að segja íbúðina. Mér er farið að þykja svo vænt um margt hérna. Það verður ótrúlega skringilegt að koma aftur til Kaupmannahafnar einhvern tímann og geta ekki farið í íbúðina mína. En það verður alveg æðislegt að koma heim og hitta alla og fá að sofa í rúminu mínu! Ég sakna þess mjög sárt. Ég og Bjössi erum líka að deyja úr spenningi yfir að hitta Etnu, barnið okkar.

Ég ætla að súper úber dugleg að taka myndir það sem eftir er. Maður verður að festa minningarnar á filmu.

December 8, 2008. Uncategorized. Leave a comment.

Jólagleði og myndir

Enn fleiri myndir eru komnar inn :) Segið mér svo ekki að ég sé ekki dugleg!

Í listasögu í gær sá ég heilan helling af Picasso málverkum á Arken listasafninu, mjög skemmtilegt það. Ég og Björn Bragi erum búin að ákveða að hafa listaverkamálun í kvöld. Keyptum helling af strigum og málningu í Söstrene Grene fyrir þó nokkru síðan og það er nú komin tími til að sjá hversu miklir listamenn við erum. Mikil jólagleði var í skólanum eftir listasafnsferðina með öllu tilheyrandi; jólaglögg, jólatónlist, jólatré, jólaskreytingar, jólamatur og svo framvegis! Við það komst ég í enn, enn, enn meira jólaskap og þá er eiginlega bara svo komið að ekki er til orð yfir svo mikið jólaskap.

Hún Ragga krútt er komin til Kaupmannahafnar frá Barcelona! Hlakka óendanlega til að hitta hana. Við ætlum að gera helling af skemmtilegum hlutum saman :D

En núna er ég að fara í langþráða klippingu og ætla ég einnig að lita á mér hárið. Ég get eiginlega ekki beðið! Er eins og reyttur hænurass um hárið…

Hérna eru myndirnar:

www.fotki.com/annareynis2

December 4, 2008. Uncategorized. 3 comments.

Elton John tónleikar

Elton Jón tónleikarnir voru ótrúlega skemmtilegir. Hann tók flest öll gömlu góðu lögin og maður fékk alveg gæsahúð þegar hann t.d. tók Yellow Brick Road, Your Song og svo mörg fleiri :) Sviðmyndin var ótrúlega flott og ég væri nú ekkert á móti því að eiga stóra, rauða, geðsturlaða flotta flygilinn sem hann spilaði á! Hann er nú kominn á jólagjafaóskalistann minn ;)

Kvenmannsfætur, bananar og kirskuber á sviðinu

Kvenmannsfætur, bananar og kirsuber á sviðinu

Þarna sjáiði óskajólagjöfina mina i ár

Þarna sjáiði óskajólagjöfina mína í ár

Nú í dag er planið að taka því ótrúlega rólega og horfa á sjónvarpið. Þarf nú reyndar að fara niður á Rådhuspladsen og ná í hjólið mitt seinna í dag. Ég ætla að reyna að draga Bjössa út með mér þannig að við getum fengið okkur kakó og horft á risastóra, fallega jólatréð sem stendur á torginu :)

November 30, 2008. Uncategorized. 3 comments.

Skítakuldi í Kaupmannahöfn + nýjar myndir

Snjórinn i Kaupmannahöfn

Snjórinn í Kaupmannahöfn

Það er skííítkalt í Kaupmannahöfn og mér er alltaf kalt á tánum :( Síðasta föstudag kom þvílíkur jólasnjór og ég er komin í mesta jólaskap sem hægt er að vera í :D

Í hádeginu á föstudaginn fór ég á Købmagergade til að kaupa jólagjöf fyrir mig frá mömmu og pabba (er að reyna að gleyma hvað það er svo ég geti verið spennt að opna pakkann). Þegar ég kom út úr búðinni snjóaði jólasnjó! Síðan gekk ég framhjá Illum, sem er skreytt svo fallega, með ísbjarnahljómsveit í glugganum sem spilar jólalög, og ég fékk ótrúlega mikla tilhlökkun í kroppinn :D Sjaldan hef ég hlakkað jafnmikið til að koma heim og vera í faðmi fjölskyldunnar minnar, kúra í herberginu mínu, í rúminu mínu, hitta vini mína og svo margt meira :D Ég hlakka einnig endalaust til að horfa á flatskjáinn heima í nýja sófanum… Ekki það að sófinn á Holger Danskes sé ekki fínn, en það má nú deila um hvort að sjónvarpið hérna sé þess virði að horfa á.

Úr skólanum er allt gott að frétta. Erum á fullu að æfa fyrir lokasýninguna og gengur það bara fínt. Var í dag og í gær í sammenspil fyrir hádegi og í film analyse eftir hádegi. Erum búin að vera að æfa lagið sem ég syng, Belief með John Mayer og gengur það bara ótrúlega vel. Í film analyse vorum við að horfa á Mullholland Drive sem er ótrúlega góð en óskiljanleg. Á morgun er listasaga og eigum við að mæta á hovedbanegarden og heimsækja safn sem er eitthvað í burtu, þannig allur skóladagurinn mun fara í það. Man því miður ekki hvaða safn það er. Á fimmtudaginn fer ég á kóræfingu og byrjum við að æfa okkar fyrsta jólalag, mér til mikillar gleði! Christmas song, eða “Chestnuts roasting on an open fire” varð fyrir valinu. Á föstudaginn höldum við vocal performance hópurinn ótrauð áfram með besta söngleik í heimi. Erum að æfa lagið “Sexual healing” eins og stendur, með viðeigandi hreyfingum haha. Þessi söngleikurinn er nú frekar mikið út um allt en hér eru nokkur lög úr honum: Luck be a lady, New York, New York, Billy Jean, My heart will go on, Sexual healing, Staying alive, Bohemian rapsody og fleira.

Einnig er skemmtilegt að segja frá því að aðeins eru 4 dagar í Elton John tónleikana í Parken!

Annars ætlaði ég helst að láta ykkur vita að ég er búin að setja inn nýjar myndir á síðuna www.fotki.com/annareynis2

Sama lykilorð og alltaf, og ekki hika við að biðja mig um það.

Ætla núna að reyna að draga svínkann með mér í ræktina, veit ekki alveg hvernig það mun ganga…

November 25, 2008. Uncategorized. 1 comment.

Nýjar myndir væntanlegar

Myndir frá dvöl mömmu, pabba, Helgu og Björns Inga eru væntanlegar. Það var alveg æðislegt að fá þau. Núna er bara mánuður þar til ég kem heim, þannig það styttist óðum í að ég sjái alla heima :)

Er núna á hraðferð, ég og Bjössi ætlum að skella í okkur í ræktina. Ætla að ná bjórbumbunni af mér fyrir jól!

Skrifa betur hérna við fyrsta tækifæri.

November 18, 2008. Uncategorized. 3 comments.

Nýjar myndir

Búin að setja inn nýjar myndir á www.fotki.com/annareynisdottir1 frá dvöl ungfrú Vigdísar og aðeins frá þessari helgi.

Allt gott að frétta, fyrir utan hálsbólgu sem virðist aldrei ætla að fara. Er einmitt að fara í sammenspil á morgun þar sem við erum að fara að æfa lagið mitt, Belief með John Mayer. Vona að ég vakni og geti kyngt án þess að finna til!

Nú eru bara um það bil 3 dagar þangað til að Helga og Bjössi koma, og 5 þar til mamma og pabbi koma :) Hlakka svo ótrúlega til að sjá þau!

Ég er komin í þvílíkt jólastuð, byrjaði sérstaklega á föstudaginn þegar jóla-Tuborg bjórinn kom og barir borgarinnar spiluðu jólalög eins og þeir ættu lífið að leysa. Einnig ýttu bláu Tuborgjólasveinarnir undir jólatilhlökkunina hjá mér. Ég ætla að fara að drífa í því að kaupa jólagjafir ;)

November 10, 2008. Uncategorized. 2 comments.

Vigguhelgin

Mikið fjör er búið að vera hér á bæ síðustu daga þar sem ég fékk Vigdísi í heimsókn. Við skemmtum okkur konunglega og náðum að gera þónokkuð margt. Hún mætti til Kaupmannahafnar um hádegisbilið á miðvikudeginum og lá leið okkar strax til Århus að heimsækja frænku hennar sem stundar þar nám við arkitektúr. Þar sem ég og Vigdís erum báðar ljóshærðar tókst okkur einhvern veginn að fara langleiðina til Svíþjóðar í staðinn fyrir Århus. Ekki spurja mig hvernig, ég veit það ekki! Það hefur örugglega verið ótrúlega gaman fyrir aðra farþega í lestinni að sjá viðbrögðin okkar þegar lestin var komin á endastað og farin að fara afturábak. Við vorum búnar að sitja í þeirri lest í 2 tíma takk fyrir. En við skemmtum okkur konunglega í lestinni, keyptum okkur bara bjór og jöppluðum á Djúpur, sem ég hef fundið út að sé eitthvað albesta nammi í heimi, rétt á undan M&M peanut butter…

Þegar komið var til Kaupmannahafnar á fimmtudeginum var strax farið á skrallið, heim til Magga Berg, þar sem margir fengu sér vel neðan í því, þannig enginn skóli var hjá mér daginn eftir ;) Sömu sögu er að segja frá á föstudeginum OG laugardeginum og hænan ég get greinilega ekki höndlað svona lagað þar sem ég er komin með bólgna eitla og endalausan höfuðverk og beinverki (sem eru reyndar horfnir í dag). Þannig að gælunafnið sem ég hef gefið Vigdísi, DJAMMDÍS, passar alveg hreint 100% !

Reyndar var ekki bara drukkið áfengi. Við fórum allavega til Århus og næstum Svíþjóðar, fórum í lestir, rútur og ferjur, skoðuðum öll innyfli, bein og vöðva mannslíkamans, versluðum, borðuðum, sváfum, eignuðumst vini og svo margt fleira :) Alltaf gaman að fá heimsóknir, og núna get ég ekki beðið eftir mömmu, pabba, Helgu og Bjössa í næstu viku! Eftir það verða ekki fleiri heimsóknir, en þá er svo ofboðslega stutt í að ég komi heim.

Ég og Björn Bragi höfum ákveðið að koma alveg heim um jólin og vera á Íslandi eftir áramót. Að sjálfsögðu er það kreppan góða sem er að setja smá strik í reikninginn. Einnig hef ég ákveðið að skella mér í háskólanám, væntanlega verkfræði í HÍ eða HR, enda er þetta besti tíminn til að vera bara fátækur námsmaður, því mjög litlar líkur eru á því að ég fái ágætis vinnu heima. Ég er þó alls ekki hætt við læknanámið, þetta verður bara smá prufa. Maður veit ekki hvernig hlutirnir eru fyrr en maður hefur prófað þá. Síðan er líka mjög hollt fyrir mig að vera að fara í mikla stærðfræði og eðlisfræði, sem er stór hluti af inntökuprófinu í lækninn. En ég er ekki búin að ákveða hvers konar verkfræði ég muni sækja um, en ég hef augun á heilbrigðisverkfræði.

Ég hlakka svo til að fara að byrja að læra! Það er samt búið að vera æðislegt að þurfa ekki að læra og taka próf. Veit ekki alveg hvar ég væri núna hefði ég farið beint í háskólanám. Ætli hálft ár sé ekki bara fullkominn tími?

Ég tók heilan helling af myndum um helgina og ég ætla að gefa mér tíma í að setja þær inn einhvern tímann í vikunni.

Áfram Obama!

Kv. Anna.

November 4, 2008. Uncategorized. 5 comments.

Next Page »